laugardagur, 5. júlí 2008

SENDIBRÉF 2

Ég fékk þetta svar frá Bjarna Gunnarssyni Þjónustustjóra Securitas á Austur Íslandi og yfirmans okkar Securitas fólks.
Sæll Hilmir og þakka þér fyrir póstinn.
Við hjónin höfum það alveg ágætt hér í Danmörku, þakka þér fyrir.
Hilmir minn, ég get ekki gert að því að þú eigir bágt á morgnana. Það er alveg undir þér komið hvernig þér lyndir við starfsfélagana og mín vegna getur þú flutt aftur þangað þar sem þú komst frá. Þú getur örugglega fengið vinnu við staðbundna gæslu í stórmarkaði. Ég skal gefa þér meðmæli en ef þú vilt ekki fara, þá eru hérna nokkur orð sem gætu bætt samlyndi þín við Toffy; einmitt, nákvæmlega, geggjað og sammála.
Það gengur ekki að vera í einhverjum feluleik á vöktum, sér í lagi á dagvakt. Nei í alvöru, ekki láta svona, enga leiki og hagið ykkur í návist starfsmanna Alcoa, þið eruð ekki löggur.
Berðu kveðjur mínar og hagið ykkur eins og öryggisvörðum ber að gera.
Bjarni gunnarsson

Þjónustustjóri Securitas á Austurlandi.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

:D er Bjarni ekki þjónustustjóri Auztur Íslands ?... En prófaðu þetta sem hann segir... Ef Toffy er í hörkusamræðum þá bara segja "Já" "er það" "flott gott að heyra" eða eh álíka hefur virkað fyrir mig hingað til :D Inn um eitt út um annað

Nafnlaus sagði...

hann bjarni hefur kannski verið í starfskynningu hjá securitas í D.K. við að gæta öryggis rússíbanaferðalanga:D

Unknown sagði...

jásko ég ætla sko að nota þetta meira og hætta að hlusta á þessa feitu kerlingu haha!
Já og svo kemur karlinn hingað til að kenna okkur ný vinnubrögð en mynnist sem minnst á hve gaman það var í tívolíinu í Köben.

Nafnlaus sagði...

Þakka ykkur bræður fyrir að viðurkenna að vera ekki að hlusta en það skiptir ekki máli því að ég veit að það er innbyggt í karlmenn... Og þakka þér enn meira fyrir Hilmir fyrir að segja að ég sé feit... Ég held að þú ættir að fara að líta í eigin barm og fara að gera eitthvað af viti sjálfur í staðinn fyrir að gagnrýna aðra og mæta svo í mælingu hjá hjúkkunni þinni og verður svo hissa að það hefur ekkert gerst nema aukið hlaupaþol sem sennilega hefur verið því að þér finnst hjúkkan vera sæt og vildir ganga í augun á henni og stinga undan manninum hennar.... En sé ykkur í næstu viku, hafið það gott þangað til...
kveðja
Toffy

Unknown sagði...

já ég veit, ég er feitur. Hvort á maður að kaupa sér hjól eða hlaupaskó?