miðvikudagur, 5. nóvember 2008

Faðmlag frá Austur Íslandi

Þá er hann farinn hann litli bróðir minn. Farinn til mömmu sinnar og pabba. Hann fann sig útbrunnan í öryggisvörslunni við álverið á Reyðafirði. Hann er öryggisvörðurinn sem verið hefur hér lengst. Mörg ár, ég veit ekki hve mörg, sennilega þrjú ár eða fjögur og búinn að upplifa margt, bæði skrýtið og það sem búast má við í slíku starfi. Einu sinni varð hann vitni að útlendingaklámi í bláum Eimskipsgámi. Þetta var ein af fyrstu sögunum sem ég heyrði er ég flutti hingað.
Ég er þegar farinn að sakna hans. Það eru aðeins þrír dagar síðan hann læddist inn í herbergið mitt, kveikti ljósið og bauð mér góða daginn. Við áttum þarna síðustu stundirnar okkar á Austur Íslandi í stofunni heima, töluðum um framtíðina og það sem áður hafði gerst hér austan megin.
Sindri hafði komið bílnum sínum á fjögur dekk og það mátti sjá léttinn á honum eða var honum kannske létt á því að komast í burtu héðan. Ég held og ég trúi því að Sindri eigi eftir að sakna austursins.
Eftir nægilega langa stund, var komið að kveðjustund. Við bræðurnir féllumst í faðma. Skrýtið hve fljótlega maður dettur úr æfingu við að faðma. Faðmlagið var frekar hart, eins og það væri veggur á milli okkar en við vorum sennilega farnir að sakna hvors annars þegar við héldum utan um hvorn annan. Hví þarftu að fara svona fljótt hugsaði ég á meðan hann ígrundaði hvort hann væri að gera rétt. Hvaða erindi á hann í bæinn? Er malbikið eitthvað svartara þar en hér? Hann verður bara að læra af þessu strákurinn og svo kemur hann ef til vill aftur seinna.
Á unga aldri var faðmlag ekkert mál, þá var ég líka barn. Enn man ég eftir skeggbroddum föður míns og svo átti hann líka Old Spice. Bróðir föður míns hann Bergur, hann faðmar mig líka alltaf þegar við hittumst og það er langt síðan við hittumst og svo á ég vin sem heitir líka Bergur og við föðmumst alltaf vel og hann hitti ég allt of sjaldan þannig æfingin er ekki stunduð nógu oft. Ég faðma fjölskylduna mína en við erum svo sem ekkert mikið fyrir faðmlög en Fúsi fær stundum faðmlag og Róbert fær faðmlag á hverjum degi.
Sindri gegnir nú störfum vaktmanns á stjórnstöð Securitas í Reykjavík. Hann ákvað að taka þessari stöðu sem þykir einkar þægileg þar sem hann situr við síma og tölvu alla liðlanga vaktina en það er auðvitað holt að breyta um umhverfi. Nýtt fólk og nýjir brandarar.
Til hamingju með nýja starfið Sindri og vegni þér vel.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já held að Sindri sé eftir að sakna okkar þegar hann fær gyllinæðina við að sitja of lengi... Þá á hann eftir að hugsa til okkar með söknuði... En þú jafnar þig á því að hann sé farinn, þú hefur þá alltaf Fúsa og Róbert... Og mig í vaktarviku því ekki viltu hitta mig í fríum :D
kveðja
Toffy

Unknown sagði...

Sindri Gyllinæð Gyllzenegger. Ég held að Sandri mundi bjóðast til að spassa rassinn á honum frítt.
já, fúsi, Róbert og þú þarna.

Nafnlaus sagði...

:) Ég held að þið eigið bara eftir að sakna mín óhugnanlega mikið, Kannski grenja ykkur í svefn ? En ég skal reyna að kíkja við tækifæri austur á bóginn, En hérna á stjórnstöðinni er þetta helvíti nice :)

Unknown sagði...

Ég viðurkenni að ég sakna þín en það að ég sé eitthvað að grenja er alveg út í pizz hött.
Þú kemur hérna með vorinu og sötrar bjór og alles.